Spennugjafi Gallagher BA20
Gallagher BA20 rafstöð 9V/12V
Gallagher BA20 er lítil og létt rafgirðingarstöð fyrir stuttar girðingar, allt að 2 km við góðar aðstæður. Hún hentar vel fyrir færanlegar eða tímabundnar rafgirðingar þar sem einföld uppsetning og sveigjanleiki skipta máli.
Rafstöðin gengur bæði fyrir 9V og 12V rafhlöðum, sem gefur góða möguleika eftir aðstæðum og notkun. Hún er með innbyggða eldingavörn, skvettuvarið hús og einfaldan rofa til að kveikja og slökkva á tækinu. Tengikaplasett fylgir með fyrir fljótlega uppsetningu.
26.700 kr. með vsk
Á lager
Lagerstaða
- Selfoss: Fá eintök
- Hvolsvöllur: Fá eintök
Á lager
Helstu kostir
- Létt og meðfærileg rafstöð
- Hentar fyrir stuttar eða tímabundnar girðingar
- Fyrir girðingar allt að 2 km við góðar aðstæður
- Virkar með bæði 9V og 12V rafhlöðum
- Innbyggð eldingavörn
- Skvettuvarið hús fyrir notkun utandyra
- Einföld notkun með on/off rofa
- Tengikaplasett fylgir með
- Rafhlaða fylgir ekki með
Tæknilegar upplýsingar
Eiginleiki | Upplýsingar |
|---|---|
Útgangsspenna | 9.600 V |
Spenna við 500 Ω | 1.700 V |
Geymd orka | 0,17 J |
Útgangsorka | 0,12 J |
Girðingarlengd, án gróðurs | 2 km |
Girðingarlengd, lítill gróður | 1,5 km |
Ráðlagt girðingarsvæði | 0,8 ha |
Rafhlaða | 9V eða 12V |
Ráðlagður jarðstaur | 1 x 0,5 m |
Ráðlögð 9V rafhlaða | 55 Ah |
Rofi | Já, on/off |


