Heim » Vefverslun » Landbúnaður » Hestar » Fóður og nammi » Sykurrófukögglar 25 kg.
Pækilmælir 0-25%
Pækilmælir 0-25% 3.680 kr. með vsk
Til baka í vörur
Joskin sturtuvagn
Joskin sturtuvagn Original price was: 6.790 kr..Current price is: 6.790 kr.. með vsk 5.432 kr. með vsk

Sykurrófukögglar 25 kg.

Vörunúmer: 4682

Sykurrófukögglar (Speedy Beet) eru trefjaríkt og auðmeltanlegt fóður sem veitir hrossum jafna og langvarandi orku. Það hentar vel sem hluti af daglegri fóðrun og getur stutt við heilbrigða meltingu.

Hátt trefjainnihald getur haft jákvæð áhrif á þarmaflóru. Varan inniheldur aðeins um 5% sykur og er laus við bæði sterkju og melassa. Því hentar hún sérstaklega vel fyrir hross með hófsperru eða EMS, eldri hesta með tannvandamál, hross sem eiga erfitt með að halda holdum, keppnishross sem þurfa hægvirka orku og einnig fyrir vandláta hesta.

Í Sykurrófukögglum er hátt hlutfall af leysanlegum trefjum, aðallega pektínum, sem gerir trefjarnar auðmeltanlegri en þær sem finnast í gróffóðri. Þetta gerir vöruna að frábærri uppsprettu hægvirkrar orku sem gerir hestinn ekki æstan eða “heitan”.

Mikilvægt
Aldrei má gefa vöruna þurra. Nauðsynlegt er að leggja hana í bleyti fyrir notkun þar sem sykur­rófuflögurnar þenjast verulega út. Tryggið að hestar hafi ekki aðgang að þurru fóðri, þar sem það getur valdið alvarlegum skaða.

4.328 kr. með vsk

Á lager

Lagerstaða

  • Reykjavík: Til á lager

Á lager

Lýsing

Sykurrófukögglar – smelltu hér til að lesa innihaldslýsingu

Notkun og skammtar (miðað við þurra vöru)

  • Sem viðbót við annað fóður: 25 g á dag fyrir hver 100 kg af lífþyngd.
  • Sem staðgengill fyrir hluta gróffóðurs (t.d. fyrir eldri hross): 400 g á dag fyrir hver 100 kg af lífþyngd.

Blandið fóðrinu með vatni í hlutfallinu 1 hluti SpeediBeet á móti 3 hlutum vatns og látið það þenjast út fyrir gjöf.

Mikilvægt
Aldrei má gefa vöruna þurra. Nauðsynlegt er að leggja hana í bleyti fyrir notkun þar sem sykur­rófuflögurnar þenjast verulega út. Tryggið að hestar hafi ekki aðgang að þurru fóðri, þar sem það getur valdið alvarlegum skaða.

Innihald
Sykurrófukögglar (sykurrófuhrat)
Næringargildi (í hverju kg)

  • Meltanleg orka: 12,0 MJ
  • Efnaskiptaorka: 9,9 MJ
  • Hráprótein: 10%
  • Hráfita: 0,7%
  • Hrátréni: 16%
  • Hráaska: 9%
  • Kalsíum: 0,7%
  • Fosfór: 0,1%
  • Natríum: 0,2%
  • Kalíum: 1,1%
  • Magnesíum: 0,3%
  • Sykur: 5%
  • Sterkja: 0%
  • Lýsín: 3,2 g
  • Metíónín: 1,5 g

Pakkning: 25 kg

Upplýsingar