Gæði í hverri gjöf
Fóðurblandan hefur frá árinu 1960 verið leiðandi í framleiðslu og sölu á íslensku gæðafóðri. Meginmarkmið Fóðurblöndunnar er að þjónusta íslenskan landbúnað og tryggja að þau, sem starfa í greininni, hámarki afrakstur vinnu sinnar, með minni tilkostnaði og á sem skemmstum tíma, án þess þó að fórna gæðum, velferð og ánægju.
Fóðurblandan framleiðir fóður fyrir nautgripi, fiðurfé, eldisfiska, hesta, kanínur, hunda, sauðfé og svín. Fóðrið er afrakstur stöðugra rannsókna og endurbóta, sem tryggir heilbrigði dýranna og eykur afurðir. Vísindaleg greining er enda forsenda þess að tryggja gæði og stöðugleika framleiðslunnar.
Fóðurblandan notar eins mikið af íslensku hráefni og völ er á. Hráefnið kemur m.a. frá bændum og birgjum á Íslandi, sem starfrækja virkt innra eftirlit og tryggja þannig gæði framleiðslunnar. Fóðurblandan er stolt af því að kaupa vörur og þjónustu innanlands og styrkja þannig íslenskt efnahagslíf. Við græðum öll á því.
Róbót – Hy-D®
Á lager
124 kr. – 142.249 kr.Price range: 124 kr. through 142.249 kr. með vsk
Feitur KK – Hy-D®
Á lager
147 kr. – 155 kr.Price range: 147 kr. through 155 kr. með vsk
Kúakögglar – Hy-D®
Á lager
0 kr. – 129.299 kr.Price range: 0 kr. through 129.299 kr. með vsk
Kurlaður maís
Á lager
2.790 kr. – 6.247 kr.Price range: 2.790 kr. through 6.247 kr. með vsk
Eldi
Á lager
119 kr. – 127.159 kr.Price range: 119 kr. through 127.159 kr. með vsk