Sáðvörur
Sýna 19–36 af 63 niðurstöðurSorted by price: high to low
Hávingull – Revansch – 20 kg
Á lager
20.832 kr. með vskUppskerumikið og vetrarþolið yrki af hávingli sem hentar vel þar sem markmiðið er traust og endingargóð grasrækt.
Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.
Smáragrasblandan 15 kg – Forsmituð
Á lager
20.274 kr. með vskMeð smáraræktun fæst aukin prótein uppskera en einnig aukin binding köfnunarefnis í jarðvegi og getur því minnkað þarfir fyrir N í áburði. Lægri þörf fyrir aðkeypt prótein leiðir til meiri hagkvæmni á búinu. Gott samspil rauðsmára og hvítsmára gefur góða uppskeru, góðan endurvöxt og hvítsmárinn dreifir úr sér með jarðrenglum svo þekjan verður góð.
Sáðmagn 25-30 kg/ha.
Grænf.V.repja Ringo 25 kg.
Á lager
19.530 kr. með vskVetrarrepjan, sem einnig er kölluð fóðurkál, fer ekki í kynvöxt á fyrsta sumri eftir sáningu. Hún sprettur mun hægar og þarf u.þ.b. 120 vaxtardaga til að ná þokkalegri stærð.
Þetta afbrigði er einstaklega heppilegt til beitar, vegna þess að það sprettur ekki úr sér. Plantan heldur sér vel fram á haust og því mikið notuð til að bata lömb á haustin eftir að þau hafa komið af fjalli.
Að sama skapi er hún vinsæl sem fóður fyrir mjólkurkýr í hárri nyt.
Uppskerumikið og blaðríkt
Sáðmagn: 10 kg / ha
Vetrarrepja Ringo 90-120 dagar
Grasfræbl.Heyfengur 15 kg.
Á lager
18.476 kr. með vskGrasfræblanda – Heyfengur 15 kg
Eins og nafnið bendir til er þetta uppskerumikil blanda með 35% innihald af hávingli. Hávingull er uppskerumikið yrki og gefur góðan endurvöxt, ásamt úrvals vallarfoxyrkjum. Góður endurvöxtur sem gefur góðan seinni slátt.
Sáðmagn 25-30 kg/ha.
Sígild smáragrasblanda 15 kg
Á lager
18.414 kr. með vskForsmituð smáragrasblanda sem sameinar vallarfoxyrki, fjölært rýgresi og 40% rauð- og hvítsmára. Hentar vel þar sem markmiðið er gott gróffóður og aukið prótein í uppskeru.
Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.
Grasfræbl.Beit og heyfengur 15 kg.
Á lager
17.360 kr. með vskGrasfræblanda – Beit og heyfengur 15kg
Söluhæsta grasfræblandan okkar undanfarin ár. Gefur góða beit og slátt með góðu fóðurgildi. Vallarfoxgras, sem er uppistaðan í blöndunni, er uppskerumikið en ekki skriðult. Vallarsveifgras er skriðul jurt, sem fyllir upp í opinn svörð og hóf- eða klaufaför eftir ágang og beit.
Sáðmagn: 25-30 kg/ha.
Grasfræbl. Vallarfox 15 kg.
Á lager
16.988 kr. með vskVallarfoxblandan – 15kg
Á sínum tíma báðu ráðunautar sérstaklega um svona blöndu. Vallarfoxgras er uppskerumikið, með gott fóðurgildi og er afar lystug grastegund. Með því að blanda þessum vallarfoxyrkjum saman næst góður fjölbreytileiki.
Sáðmagn: 25-30 kg/ha.
Grasfræbl. Sígild 15 kg.
Á lager
16.244 kr. með vskGrasfræblanda – Sígild 15 kg
Upplagt til ísáningar!
Góð blanda sem hefur komið vel út hjá bændum. Góð svörun í endurræktinni. Breitt úrval vallarfoxyrkja, ásamt fjölæru rýgresi. Ferlitna rýgresi gefur meiri uppskeru og byggir upp gott gróffóður með vallarfoxgrasinu. Harðger og vetrarþolin blanda.
Sáðmagn: 20-25 kg/ha.
Grasfr.fjölærtrýgr.Calibra 20 kg
Á lager
15.500 kr. með vskDökkgrænt og fíngert fjölært rýgresi sem gefur góða uppskeru og hentar bæði til sláttar og beitar.
Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.
Grænf.Vetrarrýgresi Barmultra 25 kg.
Á lager
14.880 kr. með vskVetrarrýgresi Barpluto: Vetrarrýgresi, ferlitna, blaðríkt, lágvaxið og skríður nánast ekkert. Þrautreynt hérlendis og mikið notað um árabil.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Vetrarrýgresi Barmultra (4 n)70-100 dagar
Grænf.S.rýgr.Barspectra 25kg
Á lager
14.880 kr. með vskSumarrýgresi Barspectra: Sumarrýgresi, ferlitna gamalt yrki sem hefur
reynst mjög vel hér á landi. Hávaxið og skríður snemma, góður endurvöxtur.
Sáðmagn 3040 kg/ha.
Sumarrýgresi Barspectra 2 (4 n) 50-60 dagar
Grasf.Túnving. Gondolin 15 kg
Á lager
13.708 kr. með vskMjög þurrkþolinn túnvingull sem hentar vel í sendinn jarðveg. Harðgerð tegund sem er mest notuð í landgræðslu og gagnast vel til að binda jarðveg.
Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.
Protaplus 15 kg – Rýgresisblanda m. smára
Á lager
13.206 kr. með vskProtoplus (rýgresi + smári): Protaplus er einært rýgresi með hraðsprotnum smára. Spennandi blanda sem hefur gefið góða raun í tilraunum í Evrópu, þar á meðal Finnlandi.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Rýgresi og smárablanda Protaplus 70-120 dagar
Grasfr.fjölærtrýgr.Calibra 25
Á lager
12.865 kr. með vskDökkgrænt og fíngert fjölært rýgresi sem gefur góða uppskeru og hentar bæði til sláttar og beitar.
Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.
Grasfr.fjölært rýgresi Mathilde 20 kg.
Á lager
12.865 kr. með vskVetrarþolið og uppskerumikið fjölært rýgresi sem hentar bæði eitt og sér og með vallarfoxgrasi.
Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.
Grænf. V-rýgresi. Danergo 25 kg.
Á lager
12.369 kr. með vskFerlitna vetrarrýgresi sem hefur reynst vel hérlendis. Hentar vel þar sem markmiðið er öflug og áreiðanleg grænfóðurrækt með góðu fóðurgildi.
Ráðlagt sáðmagn er 30–40 kg/ha.
Grasf.fjölært rýgresi Birger 20 kg
Á lager
12.276 kr. með vskFerlitna fjölært rýgresi með fínt vetrarþol sem getur gefið bragðgott og næringarríkt fóður.
Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.
Grasfr.vallafox. Rakel 10 kg
Á lager
9.424 kr. með vskUppskerumikið vallarfoxyrki sem gefur meiri endurvöxt en norðlæg yrki. Hentar vel þar sem markmiðið er góður vöxtur og meiri endurnýjun yfir tímabilið.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.