Sáðvörur
Sýna 1–12 af 63 niðurstöðurSorted by average rating
Sáðvörur
Grænf.Vetrarrýgresi Barmultra 25 kg.
Á lager
14.880 kr. með vskVetrarrýgresi Barpluto: Vetrarrýgresi, ferlitna, blaðríkt, lágvaxið og skríður nánast ekkert. Þrautreynt hérlendis og mikið notað um árabil.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Vetrarrýgresi Barmultra (4 n)70-100 dagar
Grænf.V.repja Ringo 25 kg.
Á lager
19.530 kr. með vskVetrarrepjan, sem einnig er kölluð fóðurkál, fer ekki í kynvöxt á fyrsta sumri eftir sáningu. Hún sprettur mun hægar og þarf u.þ.b. 120 vaxtardaga til að ná þokkalegri stærð.
Þetta afbrigði er einstaklega heppilegt til beitar, vegna þess að það sprettur ekki úr sér. Plantan heldur sér vel fram á haust og því mikið notuð til að bata lömb á haustin eftir að þau hafa komið af fjalli.
Að sama skapi er hún vinsæl sem fóður fyrir mjólkurkýr í hárri nyt.
Uppskerumikið og blaðríkt
Sáðmagn: 10 kg / ha
Vetrarrepja Ringo 90-120 dagar
Grasfr. V.sveifgr. Balin 25 kg
Á lager
27.280 kr. með vskÞrautseigt vallarsveifgras sem hefur reynst vel og þekur vel. Hentar vel þar sem markmiðið er þétt og endingargóð gróðurþekja.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Gras.V.sveifgr. Oxford 20 kg
Á lager
21.824 kr. með vskÞrautseigt vallarsveifgras sem hefur reynst vel og þekur vel. Hentar vel til að byggja upp þéttan svörð.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Grasfr.Vallarfox. Tuukka 25 kg.
Á lager
24.490 kr. með vskVallarfoxgras Tuuka gefur góða uppskeru. í rannsóknum hefur Tuuka einnig gefið gott fóðurgildi. Vetrarþol þokkalegt – finnar telja Tuuka með vetrarþolnari yrkjum sem þeir rækta.
Sáðmagn pr. ha =20-25 kg
Gaf heldur meiri uppskeru en Snorri í tilraunum hér á landi en minni uppskeru en Grindstad. Í finnskum rannsóknum hafði það betra fóðurgildi en Grindstad. Vetrarþol gott. Finnar telja það með vetrarþolnari yrkjum við sínar aðstæður
Grasfr.Vallarfox Tenho 25 kg.
Á lager
24.490 kr. með vskUppskerumikið vallarfoxyrki með þokkalegt vetrarþol. Góður kostur þar sem áhersla er á afköst og stöðugan vöxt.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Grasfr.vallafox. Snorri 10 kg.
Á lager
9.424 kr. með vskMjög vetrarþolið vallarfoxyrki, afrakstur samnorrænna kynbóta. Gefur nokkuð góða uppskeru og hentar vel þar sem vetrarþol skiptir miklu máli.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Grænf.S.rýgr.Barspectra 25kg
Á lager
14.880 kr. með vskSumarrýgresi Barspectra: Sumarrýgresi, ferlitna gamalt yrki sem hefur
reynst mjög vel hér á landi. Hávaxið og skríður snemma, góður endurvöxtur.
Sáðmagn 3040 kg/ha.
Sumarrýgresi Barspectra 2 (4 n) 50-60 dagar
Sáðkorn Bygg Smyrill 6R/25 kg
Á lager
4.052 kr. með vskÍslenskt sexraða byggyrki úr kynbótum LBHÍ sem hefur staðið sig vel í íslenskum korntilraunum.
Ráðlagt sáðmagn er 190–215 kg/ha.
Protaplus 15 kg – Rýgresisblanda m. smára
Á lager
13.206 kr. með vskProtoplus (rýgresi + smári): Protaplus er einært rýgresi með hraðsprotnum smára. Spennandi blanda sem hefur gefið góða raun í tilraunum í Evrópu, þar á meðal Finnlandi.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Rýgresi og smárablanda Protaplus 70-120 dagar
Landgræðslublanda 1 kg
Á lager
2.089 kr. með vskGrasfræ til landgræðslu.
Notkunasviðið er allt frá því að örva gróðurframvindu á örfoka landi til þess að auka magn og gæði gróðurs.
Við uppgræðslu þarf yfirleitt að nota fræ og áburð í sömu skömmtum og notaðir eru við uppgræðslu á gróðurlausu landi.
notið 4 – 5 kg af Græði 6 eða Blákorni á 100m2
Landgræðslublanda 15 kg
Á lager
29.481 kr. með vskLangræðslufræ
Landgræðslublanda – Grasfræ til landgræðslu – 15kg
Ný blanda með túnvingul, vallarsveifrasi og rýgresi.
Algengt sáðmagn er 2-3kg af fræinu á 100m2.
Nota skal 4-5kg af áburði(Blákorn eða Græðir 6) með fræinu. Blanda hvoru tveggja saman og dreifa.
Óráðlegt er að sá í miklum þurrkum ef ekki er hægt að vökva. Forðist að sá ef það er mjög hvasst.
Hentugast er að sá frá maí fram í miðjan ágúst.