Túnin

Heim » Vefverslun » Túnin » Page 17

Túnin

Fjölgræðir 8

Á lager

21-7-11

Ca – Mg – S

Áburður fyrir kalísnauð mýrartún, sem eru algengust um vestan- og norðanvert landið. Af þrígildum áburðartegundum, hentar Fjölgræðir 8 síst með búfjáráburði. Inniheldur brennistein (S).

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 4

Á lager

24-8-7

Einkorna – Se – Mg – S – Ca

Blandaður þrígildur einkorna áburður. Köfnunarefnisríkur með hlutföll í meðallagi af fosfór og kalí. Fyrir tún í ágætis rækt. Hentar einnig með búfjáráburði.

Góður áburður fyrir beit.

Inniheldur brennisteinn og kalsíum sem ætti að nægja til að viðhalda góðum jarðvegsforða.

Inniheldur Selen

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 9

Á lager

27-6-6

Einkorna – Mg – S – Ca – Se

Þrígildur einkorna áburður. Hentar á gömul tún, þar sem fosfór (P) hefur safnast upp. Góður með búfjáráburði, ef þörf er á að bera þrígildan áburð á. Vinsæl áburðartegund. Inniheldur selen (Se) og brennistein (S).

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 6

Á lager

20-10-10

Einkorna – Mg – S – Ca – Se

Einkorna áburður sem uppfyllir þarfir meðaltúna, sem fá að auki góðan skammt af seleni (Se). Hentar vel þar sem ekki er búfjáráburður. Er líka góður fyrir grænfóðurrækt, bygg og hafra.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 5

Á lager

15-15-15

Einkorna – S – Ca – Se

Frábær selenbættur áburður fyrir endurræktun túna og í kornrækt á frjósömu landi. Fyrir allt grænfóður í frumræktun og fyrir kál. Hentar vel á nýrækt og þar sem skortur er á fosfór (P) og kalí (K) í túnum.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 1

Á lager

12-12-17

Einkorna – B – Mg – S

Klórfrír einkorna áburður fyrir ræktun á matjurtum, kartöflum og jurtum af krossblómaætt, t.d. káli, gulrótum, gulrófum, spínati og salati. Hentar einnig í skrúðgarða og skógrækt.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Fjölmóði 3

Á lager

26-6

Se – Mg – S – Ca

Notist með búfjáráburði á eldri tún og þar sem jarðvegur er kalíríkur og fosfórstaða er góð. Selen- og kalkbættur áburður, sem stuðlar að auknu magni selens í gróffóðri. Kalkrík blanda.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Magni S

Á lager

N27

Ca

Hentar vel a milli slátta, á grænfóður og á tún, sem fá nægan búfjáráburð. Frábær fyrir beitilönd og tún með vöntun a brennisteini. Byggir upp rótarkerfið og er mjög kalkríkur.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Magni 1

Á lager

N27

Einkorna – Ca

Magni 1 hentar vel á milli slátta og fyrir fyrsta slátt, þar sem búfjáráburður er notaður á eldri tún.

Hentar einnig sem viðbótaráburður á grænfóður. Mjög kalkríkur áburður sem kemur í veg fyrir lágt sýrustig jarðvegs sem hefur góð og jákvæð áhrif á frjósemi jarðvegsins.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Ertur Ingrid – 500 kg

VNR: 2004100

Uppselt

110.980 kr. með vsk

Uppskerumiklar fóðurertur sem mynda gular baunir við fullan þroska. Ingrid er með sterkbyggðan og langan stöngul og ver sig því ágætlega gegn illgresi.

Ráðlagt sáðmagn er 200–250 kg/ha.

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar. 

Sáðkorn Bygg Smyrill 6R/600 kg

VNR: 2023060

Uppselt

95.904 kr. með vsk

Íslenskt sexraða byggyrki úr kynbótum LBHÍ sem hefur staðið sig vel í íslenskum korntilraunum.

Ráðlagt sáðmagn er 190–215 kg/ha.

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar.