Áburður

Heim » Vefverslun » Túnin » Áburður » Page 2

Blákorn 12,5 kg

VNR: 1132812

Á lager

4.190 kr. með vsk
Blákorn er frábær alhliða áburður ætlaður á grasflatir og skrúðgarða. Áburðurinn leysist vel upp í jarðvegi en gott er að gefa áburð á grasflatir að vori og enda gjöf síðla sumars.
Hentar vel á blómabeðin, matjurtirnar, grasið og tré. Klórsnauður NPK-áburður með kalki, magnesíum, brennisteini og bór.
  • Blákorn inniheldur öll helstu næringar og snefilefni sem gróðurinn þarfnast.
  • Ráðlagður skammtur er um 20 gr á m2. Það má segja að það sé ca lófafylli sem dreift er jafnt. Gott er að bera á 3-4 sinnum á vaxtartíma sem er frá maí og fram í miðjan júlí.
  • Við mælum með að stika niður garðinn svo maður gleymi sér ekki hvar hefur verið borið á. Auðveldar líka að reikna út hversu mikið magn þarf af áburði í heild.

12,5 kg poki dugir á ca 625 m2

Kalkkorn 25 kg

VNR: 1110625

Á lager

4.190 kr. með vsk

Kalkkorn er kornað kalk og þægilegt til dreifingar á grasflatir. Kalkið vinnur gegn súrnun jarðvegs og auðveldar plöntum upptöku annarra efna, auk þess heldur það mosa í skefjum.

  • Athugið að ekki ber að kalka kartöflugarða vegna kláðahættu, nema um mjög súran jarðveg sé að ræða.
  • Einnig þrífast nokkrar tegundir skrautjurta best í súrum jarðvegi.

Græðir 6, 25 kg

VNR: 1133625

Á lager

6.690 kr. með vsk

Græðir 6

Græðir er tilbúinn áburður fyrir grasflatir. Áburðurinn er settur saman þannig að hann liggur nálægt meðalþörf. Ætti að viðhalda þeirri þörf sem jarðvegurinn þarf sé ekki um skort að ræða.

Ef grasflötin á að vera falleg, þétt og ræktarleg þá þarf að ná upp vextinum en þá þarf líka að slá oftar.

  • Ráðlagður skammtur er um 40gr. á m2 – ca 2 lúkur.
  • Bera skal Græði á um leið og farið er að grænka.
  • Ekki skal nota græði á sumarblóm, rifsberjarunna og kartöflur.

Blákorn 25 kg.

VNR: 1132825

Á lager

8.490 kr. með vsk
Blákorn er frábær alhliða áburður ætlaður á grasflatir og skrúðgarða. Áburðurinn leysist vel upp í jarðvegi en gott er að gefa áburð á grasflatir að vori og enda gjöf síðla sumars.
Hentar vel á blómabeðin, matjurtirnar, grasið og tré. Klórsnauður NPK-áburður með kalki, magnesíum, brennisteini og bór.
  • Blákorn inniheldur öll helstu næringar og snefilefni sem gróðurinn þarfnast.
  • Ráðlagður skammtur er um 20 gr á m2. Það má segja að það sé ca lófafylli sem dreift er jafnt. Gott er að bera á 3-4 sinnum á vaxtartíma sem er frá maí og fram í miðjan júlí.
  • Við mælum með að stika niður garðinn svo maður gleymi sér ekki hvar hefur verið borið á. Auðveldar líka að reikna út hversu mikið magn þarf af áburði í heild.
25 kg poki dugir á ca 1250 m2
Efnainnihald
– kornastærð 2-5mm

Hand-dreifari 30 ltr á 2 hjólum

VNR: CG409-145

Á lager

21.900 kr. með vsk
  • Tekur 30 lítra
  • Kemur með tveimur,  9.3” loftdekkjum
  • Inniheldur grind að innanverðu, stíflast því ekki.
  • Plasthlíf til að setja ofan á, því ekkert mál að bera á í rigningu.
  • Mjúkt grip til að halda í þegar kerran er keyrð um.
  • Einfalt að dreifa með handfangi
  • Dreifir 2-3 m.
  • Stærð L x H x W: 48 x 50 x 90 cm
  • Samsetningarvara.