Landbúnaður
Sýna 253–264 af 275 niðurstöðurSorted by price: low to high
Raða eftir
Sía eftir verði
Litir
Stærð
Birgðastaða
Landbúnaður
Hrímnis leður gjörð
Á lager
27.991 kr. með vskÞessi gjörð er hönnuð með þægindi hestsins í fyrirrúmi.
Hún er úr hágæða leðri og er með sterkum spennum úr ryðfríu stáli.
Lögun gjarðarinnar, mjúk svampfylling og teygjanlegar ólar gera hana sérstaklega þægilega fyrir hestinn. Gjörðina er auðvelt að stilla, situr vel og veitir sveigjanleika til hreyfingar og öndunar.
Spennur með rúllum og auka fjöðrum gera stillinguna einstaklega auðvelda og fljótlega.
Festingin fyrir ólinina er hönnuð til að koma í veg fyrir að hár eða húð klemmist.
Gjörðin er fáanleg í mismunandi lengdum.
Hekla regnjakki karla
Á lager
27.991 kr. með vskLéttur regnjakki fyrir kröfuhart veðurfar
Regnjakkinn Hekla er úr tæknilega háþróuðum efnum og hannaður til að mæta þörfum knapa og annarra virkra einstaklinga við krefjandi aðstæður. Hann er gerður til að halda þér þurrum, hlýjum og laus við óþægindi – sama hvernig veðrið leikur við.
Hann býður upp á framúrskarandi þægindi þökk sé léttri 4-átta teygju og góðri rakastýringu. Vatnsheldni er allt að 10.000mm með límdum saumum og efnið andar vel (10.000 g/m²).
Stillanleg hetta veitir auka vörn – hægt er að nota hana bæði yfir eða undir reiðhjálm. Brjóstvasi með vatnsheldum rennilás heldur innihaldinu þurru.
Hekla er fullkominn regnjakki fyrir alla sem lifa virku lífi og treysta ekki alltaf á gott veður – hvort sem það er í hesthúsinu, á ferð eða í útivist.
Hekla regnjakki kvenna
Á lager
27.991 kr. með vskLéttur regnjakki fyrir kröfuhart veðurfar
Regnjakkinn Hekla er úr tæknilega háþróuðum efnum og hannaður til að mæta þörfum knapa og annarra virkra einstaklinga við krefjandi aðstæður. Hann er gerður til að halda þér þurrum, hlýjum og laus við óþægindi – sama hvernig veðrið leikur við.
Hann býður upp á framúrskarandi þægindi þökk sé léttri 4-átta teygju og góðri rakastýringu. Vatnsheldni er allt að 10.000mm með límdum saumum og efnið andar vel (10.000 g/m²).
Stillanleg hetta veitir auka vörn – hægt er að nota hana bæði yfir eða undir reiðhjálm. Brjóstvasi með vatnsheldum rennilás heldur innihaldinu þurru.
Hekla er fullkominn regnjakki fyrir alla sem lifa virku lífi og treysta ekki alltaf á gott veður – hvort sem það er í hesthúsinu, á ferð eða í útivist.
Hrímnis fiðrildagjörð
Á lager
29.989 kr. með vskÞessi gjörð er hönnuð með þægindi hestsins í fyrirrúmi.
Hún er úr hágæða leðri og er með sterkum spennum úr ryðfríu stáli.
Teygjanleg böndin í þessari breiðu leðurgjörð gera hestinum kleift að þenja bringuna í hverjum andardrætti við þjálfun. Lögun gjarðarinnar bíður upp á góðan hreyfileika og bestu mögulegu þrýstingsdreifingu.
Gjörðin er fáanleg í mismunandi stærðum.
Bluetooth heyrnartól fyrir hjálma
Á lager
30.870 kr. með vskBluetooth heyrnartól fyrir reiðhjálminn þinn. Hannað af hestamönnum fyrir hestamenn.
- Hringdu og taktu á móti símtölum á meðan þú ert í hnakknum.
- Hlustaðu á uppáhalds tónlistina eða hlaðvarpið þitt.
- Hentar vel í reiðkennslu eða í hestaferðina.
- Neyðarkallhnappur
Hentar einnig fyrir flesta hjólahjálma, fjallaklifurhjálma, hjólabretti, íshokkí og krikket hjálma.
Hrímnis fjölnota hringtaumsmúll – Atlas
Á lager
31.990 kr. með vskHrímnir Atlas Multi Cavesson er taumlaus þjálfunarmúll sem þróaður var í samstarfi við reiðkennara og FT-meistaraþjálfara Eyjólf Ísólfsson. Múllinn hentar bæði í hringtaumsvinnu, vinnu með hestinn í taumi og reið. Hann er úr hágæða leðri með ryðfríum stálspennum. Rúllur í spennunum gera stillingar fljótar og auðveldar. Markmiðið var að skapa sterka og endingargóða hönnun, þannig að Multi Cavesson henti einnig í þjálfun unghesta.
Nefbandið inniheldur málmstykki sem gerir þjálfaranum kleift að hafa nákvæm áhrif á hestinn. Málmstykkið er mjúklega bólstrað til að vernda nefbein hestsins og tryggja jafna dreifingu þrýstings. Það má móta það að lögun höfuðs hestsins með því að beygja það varlega, sem tryggir að múllinn passi fjölbreyttum höfuðmótum og stærðum. Bæði höfuðleður og undirhökuól eru mjúklega bólstruð til að veita betri þrýstingsdreifingu og aukin þægindi fyrir hestinn.
Á nefbandinu eru þrír fastir málmhringir sem trufla ekki hestinn við vinnu. Þessir hringir gera þjálfaranum auðvelt að vinna rétt frá báðum hliðum. Múllinn gerir kleift að hafa áhrif á hliðarlegu í hnakkagrind og beygju í hálsi af mikilli nákvæmni. Þetta er lykilatriði til að hjálpa hestinum að teygja hálsinn fram og niður, lyfta bakinu og hreyfa sig frjálslega — og stuðlar jafnframt að betra jafnvægi.
Tveir málmhringir á undirhökuólinni geta verið notaðir til að ná betri lóðréttri legu í hnakkagrind.
Hringirnir á nefbandi og undirhökuól opna fyrir fjölmargar stillingar og gefa margvíslega möguleika í þjálfun. Til dæmis er hægt að ríða með tveimur taumum — einum til að aðstoða við beygju og öðrum til að fá meiri lóðrétta legu í hnakkagrind.
WIPO skráð hönnun.
Krafla reiðjakki kvenna
Á lager
34.990 kr. með vskGlæsilegur jakki sem lætur reiðmanninn líta fagmannlega út á brautinni.
Krafla Tech er með glæsilegu sniði ásamt einstaklega þægilegu tækniefni gerir þennan jakka einstaklega fágaðan. Krafla Tech er úr mjög teygjanlegu Tech efni, það passar fullkomlega og hreyfist með þér fyrir einstakt frelsi og þægindi. Þar að auki er Krafla Tech vatnsfráhrindandi.
Brjóstvasi og silfurlitaðir hnappar til lokunar að framan og á ermum bjóða upp á hárréttan stílhreinan stíl.
Þessi jakki er úr 78% nylon og 22% spandex.
Kraftur reiðjakki karla
Á lager
34.990 kr. með vskGlæsilegur jakki sem lætur reiðmanninn líta fagmannlega út á brautinni.
Kraftur Tech er með glæsilegu sniði ásamt einstaklega þægilegu tækniefni gerir þennan jakka einstaklega fágaðan. Kraftur Tech er úr mjög teygjanlegu Tech efni, það passar fullkomlega og hreyfist með þér fyrir einstakt frelsi og þægindi. Þar að auki er Kraftur Tech vatnsfráhrindandi.
Brjóstvasi og silfurlitaðir hnappar til lokunar að framan og á ermum bjóða upp á hárréttan stílhreinan stíl.
Þessi jakki er úr 78% nylon og 22% spandex
Embla reiðbuxur kvenna
Á lager
34.990 kr. með vskÞessar reiðbuxur voru hannaðar til að mæta þörfum knapa við erfiðar aðstæður. Þær bjóða upp á framúrskarandi þægindi og auðvelda hreyfingu vegna fjögurra átta teygjanleika efnisins með rakastjórn. Þær eru vatnsfráhrindandi og léttar og því má nota þær allt árið um kring.
Þessar reiðbuxur eru með klassísku sniði með miðlungsháu mitti, teygjanlegu mittisbandi og sterkum YKK®-rennilás. Þær eru með þremur beltislykkjum (einni X-laga að aftan) og tveimum rúmgóðum vösum að framan.
Rennilásarnir neðst á skálmunum tryggja besta mögulega hreyfanleika og þægindi.
Fótólarnir halda skálmunum niðri við reið, svo þær renni ekki upp.
Bluesign®-samþykkt býður upp á hæsta stig öryggis fyrir neytendur með því að nota aðferðir og efni í framleiðslu þeirra sem spara auðlindir og lágmarka áhrif á fólk og umhverfi.
Þessar reiðbuxur koma í fjórum lengdum: stuttar, venjulegar, langar og extra langar.
Efni: Nylon 93%, Spandex 7%
Askur reiðbuxur karla
Á lager
34.990 kr. með vskÞessar reiðbuxur eru hannaðar til að mæta þörfum knapa við krefjandi aðstæður. Þær bjóða upp á framúrskarandi þægindi og góða hreyfigetu þökk sé 4-átta teygjanleika í efni með rakastýringu. Þær eru vatnsfráhrindandi og léttar og henta því allt árið um kring.
Buxurnar eru með klassísku sniði, meðalháu mitti, teygjanlegu mittisbandi og endingargóðum YKK® rennilás. Þær eru með þremur beltislykkjum (ein í kross á bakinu) og tveir rúmgóðir renndir vasar að framan.
Rennilásarnir neðst á skálmunum tryggja betra aðhald og aukin þægindi.
Fótólarnar koma í veg fyrir að buxurnar renni upp þegar setið er á baki.
Bluesign®-vottunin tryggir mesta mögulegt öryggi fyrir neytandann með því að nota framleiðsluaðferðir og efni sem spara auðlindir og lágmarka áhrif á fólk og umhverfi.
Þessar buxur fást í tveimur lengdum: venjulegri og lengri.
Efni: 93% nælon, 7% spandex