Nautgripir
Sýna 85–93 af 93 niðurstöðurSorted by average rating
Nautgripir
Agri burðargel
Á lager
940 kr. – 2.200 kr.Price range: 940 kr. through 2.200 kr. með vskSleypiefni sem þornar ekki né flagnar og er einnig tilvalið í fósturtalningu, eyrnamerkingar o.fl.
Súrdoðavörn – Ketoglyk
Á lager
6.200 kr. – 155.000 kr.Price range: 6.200 kr. through 155.000 kr. með vskBragðgott glúkósamyndandi bætiefni sem tryggir jórturdýrum háan blóðsykur og fyrirbyggir þar með súrdoða og þyngdartap.
Kurlaður maís
Á lager
2.790 kr. – 6.247 kr.Price range: 2.790 kr. through 6.247 kr. með vskKurlaður maís hentar fyrir flestar tegundir smáfugla, t.d. fínkur og snjótittlinga.
Hentar einnig sem viðbótarfóður fyrir nautgripi, hross og hænsni til að auka orkustyrk fóðurs.
Geldstöðukögglar Hy-D®
Á lager
155 kr. – 159.579 kr.Price range: 155 kr. through 159.579 kr. með vskGeldstöðukögglar Fóðurblöndunnar eru nýtt hágæða kjarnfóður, sérhannað fyrir geldkýr.
Próteinríkt kjarnfóður með Hy-D®, E-vítamíni, bíótíni og magnesíum. Styður við vömbina, byggir upp próteinforða og eykur heilsu og afurðir eftir burð.
Með réttri kjarnfóðurgjöf á geldstöðunni, undirbýr fóðrið vömbina. Vambartotur þroskast og örvast og venjast þeim hráefnum sem eru í kúafóðri og kemur til með að vera stór hluti af þeirra fóðrun eftir burð. Fóðrið er próteinríkt með hágæða amínósýrusamsetningu. Það gerir kúnna betur búna til að skila meiri afurðum eftir burðinn með því að byggja upp nægan próteinforða og minnkar líkur á niðurbroti vöðva til að standa undir mjólkurframleiðslunni.
Helsti ávinningur þess að gefa Geldstöðuköggla á geldstöðunni:
- Aukið heilbrigði gripa
- Fækkar sjúkdómstilfellum, doða, súrdoða og júgurbólgu
- Heilbrigðari kálfar
- Meiri afurðir
- Aukin hagkvæmni í rekstri
Sérlega öflug næring fyrir geldkýr sem skilar sér í bættri heilsu og auknum afurðum
Calf Kick Start 495ml
Á lager
11.371 kr. með vskBætiefni fyrir veikburða kálfa
Bætiefni í 495ml brúsa sem að eykur orku, matarlyst og viljann til að sjúga. Auðleysanleg vítamín og steinefni sem að skila sér fljótt inn í blóðrásina.
Kálfa kick start gerir kálfinn harðgerðari og eykur þannig lífsmöguleika veikburðra kálfa.
Hanskar einnota uppháir
Á lager
3.710 kr. með vskNitril hanskar langir Exellent stærðir S-XL, 100 stk/pk, bláir.
Henta vel fyrir léttar hreingerningar, aðhlynningu, meðhöndlum matvæla og umfram aðra hanska henta þeir til meðhöndlunar á lyfjum og fjölda kemískra efna.
Þeir vernda gegn ýmsum veirum og bakteríum.
Púður- og latexfríir.
Strongwear Vitrile einnota hanskar
Á lager
3.250 kr. með vskStrongwear Einnota Vitrile (E30003)
Einnota vitrile vettlingarnir eru unnir úr 80% vínyl og 20% nitrile. Þeir eru hentugir í matvælaiðnað, á rannsóknarstofum og heilbrigðisstofnunum. Þeir eru þynnri en nitrile vettlingarnir og því hentugri ef meðhöndla á fíngerða hluti.
- Efni: Vínyl og Nitrile
- Stærðir: S, M, L, XL
- Búnt: 100 vettlingar í búnti.
- Litur: Blár (E30003)
- EN 455: Vottun fyrir matvælaiðnað
- EN 374: Vörn gegn ýmsum efnum
- Vottun: BSI, vottun fyrir matvælaiðnað.
Sýra Cid NonP fyrir mjaltakerfi
Á lager
12.338 kr. – 23.310 kr.Price range: 12.338 kr. through 23.310 kr. með vskSýra CID NON P er fosfatlaust sýruþvottaefni sem fjarlægir steinefni og kemur í veg fyrir steinefnasöfnun. Mælt er með þvotti með Alkali Non P og Super.
Róbót – Hy-D®
Á lager
124 kr. – 142.249 kr.Price range: 124 kr. through 142.249 kr. með vskRóbót blöndurnar eru kjarnfóðurblöndur á sanngjörnu verði sem henta við fjölbreyttar aðstæður.
- Hentugt samspil ólíkra sterkjuafurða.
- Lystugt kjarnfóður.
- Frábær kögglagæði og hentar því vel til gjafar í mjaltaþjónum.
- Inniheldur HY-D
Til að bæta heilsufar gripanna og auka afurðir höfum við nú bætt HY-D®, lífvirku og hraðvirku D-vítamíni, í allar okkar fóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr.
HY-D® nýtist beint og hraðar í líkama gripanna og skilar sér í mælanlegum ávinningi:
✔️ Meiri D-vítamín virkni – hærra D-vítamínmagn í blóði
✔️ Meiri og betri broddmjólk – sterkari og heilbrigðari kálfar
✔️ Hærri nyt – vegna bættra Ca efnaskipta
✔️ lægri frumutala – minni líkur á júgurbólgu
✔️ Öflugra ónæmiskerfi – lægri tíðni sýkinga
✔️ Bætt heilsufar og meiri afurðir