Fóður
Sýna 13–15 af 15 niðurstöðurSorted by latest
Fóður
Geldstöðukögglar Hy-D®
Á lager
155 kr. – 159.579 kr.Price range: 155 kr. through 159.579 kr. með vskGeldstöðukögglar Fóðurblöndunnar eru nýtt hágæða kjarnfóður, sérhannað fyrir geldkýr.
Próteinríkt kjarnfóður með Hy-D®, E-vítamíni, bíótíni og magnesíum. Styður við vömbina, byggir upp próteinforða og eykur heilsu og afurðir eftir burð.
Með réttri kjarnfóðurgjöf á geldstöðunni, undirbýr fóðrið vömbina. Vambartotur þroskast og örvast og venjast þeim hráefnum sem eru í kúafóðri og kemur til með að vera stór hluti af þeirra fóðrun eftir burð. Fóðrið er próteinríkt með hágæða amínósýrusamsetningu. Það gerir kúnna betur búna til að skila meiri afurðum eftir burðinn með því að byggja upp nægan próteinforða og minnkar líkur á niðurbroti vöðva til að standa undir mjólkurframleiðslunni.
Helsti ávinningur þess að gefa Geldstöðuköggla á geldstöðunni:
- Aukið heilbrigði gripa
- Fækkar sjúkdómstilfellum, doða, súrdoða og júgurbólgu
- Heilbrigðari kálfar
- Meiri afurðir
- Aukin hagkvæmni í rekstri
Sérlega öflug næring fyrir geldkýr sem skilar sér í bættri heilsu og auknum afurðum
Kálfamúslí Euroflakes 25kg
Á lager
5.827 kr. með vskLystugt og gott kálfamúslí. Vöxtur og þroski á vambatotum er lykilatriði í kálfaeldi. Þær þurfa sterkju til að vaxa eðlilega. Leggðu grunn að góðri framleiðsluframtíð kálfsins. Inniheldur 19% prótein.
Feitur Extra 18 Hy-D®
Á lager
146 kr. með vskFeitur Extra 18 er orkurík blanda með 18% hrápróteininnihaldi. Inniheldur m.a. fiskimjöl. Gefur hentug AAT og PBV gildi í heildarfóðri. Feitur Extra 18 er frekar trénisrík tegund, sem stuðlar að hentugu vambarumhverfi og hjálpar til við mjólkurfitumyndun. Sérhannað kjarnfóður til þess að auka nyt, verðefni og bæta heilbrigði kúnna. Góð kögglagæði. Hentar vel í mjaltaþjóna og kjarnfóðurbása. Inniheldur Hy-D®.
Þetta fóður er eingöngu selt í lausu.
Til að bæta heilsufar gripanna og auka afurðir höfum við nú bætt HY-D®, lífvirku og hraðvirku D-vítamíni, í allar okkar fóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr.
HY-D® nýtist beint og hraðar í líkama gripanna og skilar sér í mælanlegum ávinningi:
✔️ Meiri D-vítamín virkni – hærra D-vítamínmagn í blóði
✔️ Meiri og betri broddmjólk – sterkari og heilbrigðari kálfar
✔️ Hærri nyt – vegna bættra Ca efnaskipta
✔️ lægri frumutala – minni líkur á júgurbólgu
✔️ Öflugra ónæmiskerfi – lægri tíðni sýkinga
✔️ Bætt heilsufar og meiri afurðir