Einkorna

Magni 1

Á lager

N27

Einkorna – Ca

Magni 1 hentar vel á milli slátta og fyrir fyrsta slátt, þar sem búfjáráburður er notaður á eldri tún.

Hentar einnig sem viðbótaráburður á grænfóður. Mjög kalkríkur áburður sem kemur í veg fyrir lágt sýrustig jarðvegs sem hefur góð og jákvæð áhrif á frjósemi jarðvegsins.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 1

Á lager

12-12-17

Einkorna – B – Mg – S

Klórfrír einkorna áburður fyrir ræktun á matjurtum, kartöflum og jurtum af krossblómaætt, t.d. káli, gulrótum, gulrófum, spínati og salati. Hentar einnig í skrúðgarða og skógrækt.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 5

Á lager

15-15-15

Einkorna – S – Ca – Se

Frábær selenbættur áburður fyrir endurræktun túna og í kornrækt á frjósömu landi. Fyrir allt grænfóður í frumræktun og fyrir kál. Hentar vel á nýrækt og þar sem skortur er á fosfór (P) og kalí (K) í túnum.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 6

Á lager

20-10-10

Einkorna – Mg – S – Ca – Se

Einkorna áburður sem uppfyllir þarfir meðaltúna, sem fá að auki góðan skammt af seleni (Se). Hentar vel þar sem ekki er búfjáráburður. Er líka góður fyrir grænfóðurrækt, bygg og hafra.

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 9

Á lager

27-6-6

Einkorna – Mg – S – Ca – Se

Þrígildur einkorna áburður. Hentar á gömul tún, þar sem fosfór (P) hefur safnast upp. Góður með búfjáráburði, ef þörf er á að bera þrígildan áburð á. Vinsæl áburðartegund. Inniheldur selen (Se) og brennistein (S).

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér

Græðir 4

Á lager

24-8-7

Einkorna – Se – Mg – S – Ca

Blandaður þrígildur einkorna áburður. Köfnunarefnisríkur með hlutföll í meðallagi af fosfór og kalí. Fyrir tún í ágætis rækt. Hentar einnig með búfjáráburði.

Góður áburður fyrir beit.

Inniheldur brennisteinn og kalsíum sem ætti að nægja til að viðhalda góðum jarðvegsforða.

Inniheldur Selen

Nánari upplýsingar um áburðinn og verð má finna hér